Fyrir nemendur með annað tungumál veita myndrænir skipuleggjarar sjónrænan hlekk á milli tungumáls og innihalds. Myndrænir skipuleggjarar hjálpa annars tungumáls nemendunum að skilja meginhugmyndina og minnka álagið á skammtímaminnið. Nauðsynlegt er að þjálfa nemendur til að vinna með myndræna skipuleggjara. Hér fyrir neðan má lesa um hvernig það er gert.
Um að þjálfa nemendur í notkun myndrænna skipuleggjara í námi.
|
Prentið út hér |
Leiðarbók er skráningarferli í námi og kennslu. Þegar ákvörðun er tekin um að nota leiðarbækur þarf að koma skýrt fram hvers vegna og hvernig á að nýta þær. Nemendur sem hafa vanist því að nota leiðarbækur í tungumálnámi hafa orðið betri í viðkomandi máli með því að nota þær markvisst. Leiðarbókin hjálpar til við skipulagningu og gefur yfirsýn og eflir ábyrgð nemenda á eigin námi.
Um að þjálfa nemendur í notkun leiðarbóka í námi. [issuu width=300 height=212 shareMenuEnabled=false backgroundColor=%23222222 documentId=111026223813-2d52f160d2a74b938a568d16edc18e8c name=lei_ab_k username=isfold id=f311780b-9bfc-cb52-be1b-167da5599173 v=2] |
Prentið út hér. |