Gratis skole

Gratis skole er en helt gratis hjemmeside, hvor du kan downloade materialer i PDF-format til undervisningsbrug. Kig ind ofte, da der sker tilføjelser og ændringer næsten hver dag.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Gratis skole

Kulturpedagogik i grundskolan

Från Finland kommer en färsk tudelad bok, som dels heter ”Kulturpedagogik i grundskolan” och ”Kulturhandbok för läraren”.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Kulturpedagogik i grundskolan

Vorráðstefna Háskólans á Akureyri

 

 

Ráðstefnan Skóli og nærsamfélag – Að verða þorpið sem elur upp barnið

 

Dagur: Laugardaginn 13. apríl 2013

Staður: Háskólinn á Akureyri, Sólborg.

Áhugavert fyrir tungumálakennara:

KL. 15:10–15:40  Málstofulota III

Nemendur af erlendur uppruna – viðhorf og  væntingar til skóla og samfélags.
Hermína Gunnþórsdóttir, lektor við HA og
doktorsnemi við HÍ og Þóroddur Bjarnason, prófessor við Ha.

Iðnnámsdanska – Hvabehar!
Rita Didriksen, dönskukennari við FNV og Björn
Sighvatz, kennari málmiðnaðargreina við FNV.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Vorráðstefna Háskólans á Akureyri

Dönskuklúbbur Norræna félagsins

Dönskuklúbbur Norræna félagsins er ætlaður börnum á aldrinum 6 – 10 ára sem vilja viðhalda kunnáttu sinni í danskri tungu. Boðið verður upp á þjálfun í tungumálinu gegnum leiki, þrautir, lestur og spjall auk þess sem áhersla verður lögð á að kynna danskar barnabækur og aðra barnamenningu. Leiðbeinendur í dönskuklúbbnum verða nemendur í dönsku frá Háskóla Íslands.

Dönskuklúbburinn hittist á laugardögum kl. 11:00-12:30 frá 2. febrúar og fram að páskum  í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7 í Reykjavík. Einhverja laugardaga í vetur mun dönskuklúbburinn heimsækja bókasafn Norræna hússins og er því mikilvægt að hafa skráð skráð barnið/börnin svo hægt sé að senda út skilaboð um breytta staðsetningu.

Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum sem búið hafa í Danmörku eða eiga danska fjölskyldu. Nauðsynlegt er að skrá sig í klúbbinn! Klúbburinn er ætlaður börnum félagsmanna og er þeim að kostnaðarlausu. ATH! Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar aðeins 2.900 kr. á ári / 1.450 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri. Skráning fer fram í síma 551-0165 eða á netfanginu valdis@norden.is.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Dönskuklúbbur Norræna félagsins

Er stúdentspróf í dönsku ónýtt?

Grein Péturs Rasmussen, kennara við MS, birt í Fréttablaðinu 16. janúar 2013 hefur vekið athygli. Greinum í Fréttablaðinu eru skorður settar hvað orðafjölda varðar. Hér birtist grein Péturs óstytt:

Upp á síðkastið hafa komið upp mál þar sem danskir háskólar hafa neitað íslenskum námsmönnum um aðgang að námsbrautum sínum með tilvísun til þess að þeir hafi ekki nógu góðar forsendur í dönsku. Mest ber á þessu hjá Verslunarháskóla Kaupmannahafnar, CBS. Þar nefna menn kröfu um 12 framhaldsskólaeiningar í dönsku til stúdentsprófs.

Síðan árið 2000 hefur danska til stúdentsprófs verið 6 einingar á öðrum brautum en málabraut en þar er krafan 9 einingar. Þegar ný námskrá fyrir framhaldsskóla tekur gildi eftir tvö ár, verður að líkindum aðeins krafa um 3 einingar. Hér ber sem sé töluvert mikið í milli.

Krafa danskra háskóla er skiljanleg. Hjá þeim miðast fjárveitingar við fjölda nema sem standast próf. Þeir fá hreinlega engar fjárveitingar til kennslu nemenda sem falla. Ef þá grunar t.d. að Íslendingar í námi hjá þeim falli frekar en Danir og að ástæðan sé ónóg hæfni í dönsku, er eðlilegt að þeir geri kröfu um stöðupróf. Meira að segja er slíkt stöðupróf til fyrir aðra útlendinga sem sækja um aðgang að námi. Það heitir Studieprøven og má t.d. lesa um það hjá Studieskolen í Kaupmannahöfn. Íslenskir umsækjendur um háskólanám í Danmörku geta þess vegna innritað sig í prófið og tekið það ef efaster um málhæfni þeirra.

Nú er ekki aðeins kennd danska í framhaldsskóla á Íslandi heldur líka í grunnskóla. Eru menn hjá CBS ekki bara ófróðir um dönskukennslu á Íslandi? Í grunnskóla er kennd danska í fjögur ár, samtals 14 tímar á viku, en 14 tímar á viku í framhaldsskóla er sama sem 14 einingar! Jafnvel þó að gert sé ráð fyrir að yngri nemendur læri minna í tímum en þeir eldri, væri ekki óeðlilegt að reikna samanlagðan kennslustundafjölda í grunnskóla og framhaldsskóla (6 einingar) sem ígildi 12 eininga nám. CBS á sem sé bara að hætta þessu einelti, eða hvað?

Djarft markmið

Þegar nánar er að gáð, dettur hvorki Dönum né Íslendingum í hug að miða tungumálahæfni við kennslustundafjölda. Sameiginlegt viðmið Evrópulanda hefur um nokkurt skeið verið svokallaður sjálfsmatsrammi í Evrópskri tungmálamöppu Evrópuráðsins fyrir framhaldsskólastígið. Þar er málhæfni sundurliðuð í fimm hæfnissvið og fyrir hvert eru tilgreind 6 þrep, A1-2, B1-2 og C1-2, þar sem C2 merkir hæfni næstum því eins og hjá innfæddum.

Studieprøven margumtalaða prófar miðað við hæfni C1, en hvaða kröfur eru gerðar til þess að standast stúdentspróf í dönsku? Í Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011, kafla 10.5 er tekin skýrt fram sú krafa um dönsku „að hæfniþrepi þrjú“ sem á öðrum stað (í viðauka 3) útleggst sem B2 á Evrópuvísu. Það er nokkuð djarft markmið þegar haft er í huga að námskráin gerir ráð fyrir að nemendur hafi náð A2 að loknum grunnskóla — vel að merkja aðeins ef þeir hafa „framúrskarandi hæfni“, á mannamáli einkunn 8-10, upp úr grunnskóla (kafla 13.2).

Framhaldsskóli getur vissulega kennt slíkum afbragðsnemanda dönsku upp í B2 og útskrifað hann með einkunn 8-10. Hinir ná því ekki. Ef vel lætur, hafa þeir hæfni upp á A1 eða lakara við inntöku í framhaldsskóla og útskrifast með einkunn 6-7 á B1 eða 4-5 á A2.

Ónýtur miði

Í öllum tilvikum vantar nokkuð upp á að íslenskur háskólanemi sem hefur ekki bætt við sig aukaáfanga í dönsku, uppfylli hæfniskröfur Studieprøven sem eru C1. CBS gerir sem sé rétt í að vísa Íslendingum á Studieprøven ef þeir vilja komast inn, og í raun má ekki mismuna Evrópubúa við inngöngu eins og hingað til hefur tíðkast.

Þá má auðvitað rökræða um það hvort krafan um C1 sé eðlileg. Persónulega hika ég ekki við að gefa nemendum með einkunn 8-10 og 9 framhaldsskólaeiningar að baki meðmæli til háskólanáms í Danmörku. Þar sem ég þekki til, hefur þeim gengið vel. Þúsundir Íslendinga hafa lokið háskólaprófi í Danmörku, flestir MA-prófi að loknu BA-prófi heima. Reynslan virðist vera sú að það hafi verið nokkuð þungt fyrstu 2-3 mánuði en þaðan af hafi allt verið í lagi. Ég veit ekki hvort þeir hafi fallið á fyrstu önn í ríkari mæli en Danir og reyndar hafa margir haft vit á að fara út áður en þeir hefja nám og hressa upp á málhæfnina. Þess vegna gæti hæfnisþrep B2 verið nægileg undirstaða. En það er ekki okkar að skipa útlenskum yfirvöldum fyrir. — Já, stúdentspróf í dönsku er ónýtur miði inn í danskt háskólanám.

Aðgangsprófið hér heima?

Annað má íhuga hér heima. Er eðlilegt að grunnskólanemar nái flestir bara hæfnisþrepi A1 eftir fjögurra ára nám í dönsku með 3-4 tíma á viku? Ég veit það ekki. Annað veit ég: Fyrir nokkrum árum, 2009, var hætt að hafa samræmt próf. Á sama tíma var hætt að gera kröfu um lágmarkseinkunn í dönsku til að komast inn á bóknámsbraut. Síðan höfum við framhaldsskólakennarar í dönsku til stúdentsprófs þurft að glíma við alveg ótrúlega mikla breidd í málhæfni nemenda, frá því að vera vel læsir og talandi til þess að vita ekki einu sinni merkingu orðsins „men“ á dönsku. Mér finnst að eitthvað hljóti að vera ábótavant í eftirlitinu með gæðum kennslu grunnskólanna. Það er allt að því afrek að læra jafn lítið á fjórum árum og sumir hafa gert. Þetta ástand auðveldur okkur ekki róðurinn við að koma mönnum upp í B2.

En hvað er þá til ráða? Hæfnisþrep B2 dugar ekki. Flestir ná meira að segja aðeins B1. Viljum við auðvelda íslenskum háskólanemum aðgang að dönskum háskólum, virðist aðeins vera til ein leið: að stofna málaskóla til undirbúnings Studieprøven í dönsku og semja við dönsk yfirvöld um að fá að halda þetta stöðupróf hér heima. Það ætti ekki að vera erfitt í framkvæmd, ekki síst með það í huga að nemendur beri að sjálfsögðu kostnaðinn, eins og þegar menn taka ökupróf.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Er stúdentspróf í dönsku ónýtt?

Dansk i december

Her på Dansktorvet har vi bæredygtigt materiale som vi kan krydre undervisningen med i december.

Fra i 2011 har vi nordisk julekalender med mange juletraditioner. Desuden findes der også en god samling sjove episoder Nordens børnelitteratur og kendte julesange.

Der er også Dagný Reynisdóttirs Julekarrusel klar til brug i begynderundervisningen.

Husk at den 10. december er der Nobelfest med Nobelbanket, pristagere og prisudeling.

Lucia firas den 13 december och är en ganska unik svensk tradition som nu är spridd i hela Sverige.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Dansk i december

Ny retskrivningsordbog i dansk

I den forbindelse har Dansk Sprognævn lavet videoer der forklarer nogle af de nye regler. Se videoerne.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Ny retskrivningsordbog i dansk

Fréttabréf FDK

Fréttabréf nóvembermánaðar 2012.

  • Facebookhópur
  • Hinn árlegi jólafrokost
  • Frétt frá bókasafni Norræna hússins.
  • Norrænar stuttmyndir
  • Krækjur
  • Ofl
Udgivet i Uncategorized | Comments Off on Fréttabréf FDK

Fræðslurfundur Félags dönskukennara verður þann 2.nóvember.  Minnt er á að kennarar utan Reykjavíkursvæðisins geta sótt um ferðastyrk hjá Kí.

  • Tími: Föstudagurinn 2.nóvember 2012 kl. 15:00 til 17:00
  • Staður: Háskólinn í Reykjavík stofa V 102
  • Skráning: hildur@gardaskoli.is

Dagskrá

Kl 15:00        Ágústa Unnur Gunnarsdóttir setur fundinn.

Kl 15:05        Ingibjörg S Helgadóttir dönskukennari við Verslunarskóla Íslands: Fjarnám  í dönsku 103 í Verslunarskóla Íslands. Um skipulag fjarnámsins.

Kl 15: 30       Brimrún Höskuldsdóttir dönskukennari í Háaleitisskóla: Nemendur búa til stuttmyndir í dönsku. Undirbúningur og vinna við gerð stuttmynda í dönsku

Kl 15:50       Kaffi í boði FDK.

Kl 16:10         Brynja Stefánsdóttir dönskukennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti: Hringekjukennsla á framhaldsskólastigi og aðrar kennsluaðferðir. Kynntar verða m.a. aðferðir sem hafa gefist vel fyrir nemendur með námsörðugleika.

Kl 16:30        Marie Hansen rejselærer í Reykjavík: Cooperativ learning.

Med udgangspunkt i bogen Cooperativ Learning af Stenlev og Kagan præsenteres forskellige konkrete undervisningsmetoder, hvor alle elever er mundtlige og aktive.

Kl 17:00        Fundi slitið.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on

Bruk Skandinavisk! er en holdningskampanje med formål å bevisstgjøre unge om verdien av, og mulighetene som ligger i, det skandinaviske språkfellesskapet. Sjá hér.

Udgivet i Uncategorized | Comments Off on