Söguhringur kvenna er fjölmenningarlegt verkefni í Borgarbókasafni unnið í samstarfi við Samtök kvenna af erlendum uppruna. Fyrsta sunnudag í mánuði hittast konur, íslenskar sem erlendar, skiptast á reynslusögum, spjalla og skapa listaverk saman í aðalsafni Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15. Síðustu tvo mánuðina hafa 30-35 konur mætt úr öllum áttum; frá Haiti, Tælandi, Frakklandi, Spáni, Þýskalandi, Hollandi, Hafnarfirði, Angola, Suður-Ameríku, Póllandi, Bandaríkjunum, Serbíu, Kosovo og Kanada, svo eitthvað sé nefnt. Það er mikinn fjársjóð að sækja í Söguhring kvenna. Hér gefst ríkt tækifæri til að kynnast mismunandi menningarheimum, æfa íslensku, eignast nýjar vinkonur og kynnast starfsemi bókasafnsins. Allar konur hafa orðið og geta tjáð sig í notalegu umhverfi og í skemmtilegum félagsskap. Hægt er að nálgast upplýsingar um næstu dagskrá Söguhrings kvenna, sem fer fram sunnudaginn 3.apríl hér og nánar um verkefnið hér.
-
.
Upplýsingamiðja og vettvangur tengdur kennslu íslensku sem annars máls
Efni
Samfélagið
Tengdir vefir
Tenglar
Námsefni
Efnisatriði
bæklingar fjölmenningarleg kennsla Fjölmennning fræðimenn Grunnskóli Innflytjendur Interlanguage Kennsla leikskóli menningarmót Millimál myndefni máltaka móðurmál nemendaverkefni Nemendur af erlendum uppruna orðaveggir plakat plaköt rannsóknir Samþætting faggreina og tungumálanáms sjónrænar stoðir Skapandi starf tungumál umhverfi Upplestur veggir Íslenska sem annað tungumál íslensk menning þverfaglegt þýðingarvélar