Um Viltu læra íslensku?

Viltu læra íslensku eru tuttugu og einn leikinn sjónvarpsþáttur sem tekinn er upp á heimilum, opinberum stöðum og í kennslustofu.

Hver þáttur er um 20 mínútur að lengd.  Í fyrri hluta hvers þáttar er fylgst með fólki við leik og störf og í seinni hluta þáttar fer fram íslenskukennsla í kennslustofu.  Lögð er áhersla á mælt mál.

Á síðu hvers þáttar er birt yfirlit yfir innihald þáttarins á ensku, íslensku, pólsku,  spænsku og þýsku.  Þættirnir er auk þess textaðir með íslenskum texta sem hægt er að nálgast á vefnum.

Þættirnir voru upphaflega sýndir í sjónvarpi árið 2003.  Framleiðandi þeirra er Jón Hermannsson hjá Tefra films og eru þættirnir byggðir á hugmynd Mike Handley.

Árið 2008 fékk mennta- og menningarmálaráðuneytið réttinn til að dreifa efninu og birta það á neti.  Þættirnir hafa verið nýttir í kennslu um allt land í nokkur ár og birtir á neti í lok ársins 2010.

Þættirnir eru varðir af höfundarréttarlögum.  Skoða, fjalla um og vísa má á þættina en öll afritun að hluta eða í heild er með öllu óheimili.

Ljósmyndir í haus eru eftir judepics og Neil D’Cruze fengnar af flickr commons.

Elke Noeske sem sendi Tungumálatorginu þýska þýðingu er þakkað fyrir framlag sitt.

Þýðingar texta yfir á fleiri tungumál eru vel þegnar og hagnýtar upplýsingar tengdar þessum vef má senda til: tungumalatorg@gmail.com