Í þessu verkefni er möguleiki á að velja ákveðna þætti til vinnu í kennslustund, eða vinna það sem stærra verkefni og þá til lengri tíma. Hér má nefna samskiptaverkefni með unglingum innanlands eða við unglinga erlendis.
Markmið: Að nemendur kynnist sjálfum sér betur og geri sér grein fyrir því sem er líkt og ólíkt hjá jafnöldrum annars staðar – innanlands og utan.
Tíska
- Hvernig er tískan í þínum bekk?
- Hvað ræður henni?
- Í hvers konar fötum líður þér best?
- Hafa auglýsingar áhrif á þig?
- Hvers konar auglýsingar hafa áhrif á þig?
- Á hvaða hátt?
- Hvað af fötum þínum er framleitt á Norðurlöndunum?
Verkefni:
- Hver nemandi í bekknum skráir hjá sér þessar upplýsingar.
- Upplýsingunum er safnað saman og þær flokkaðar eftir löndum.
- Hver einstaklingur gerir tillögu að einni síðu í tímarit bekkjarins.