Skólinn

Markmið: Að nemendur vinni stutt verkefni þar sem þeir kanna nánasta umhverfi og aðstæður og kynni afraksturinn með skýrslu og/eða munnlegri kynningu.

  • Hve margir nemendur eru í skólanum þínum?
  • Hve margir eru í þínum árgangi?
  • Hve margir eru í bekknum þínum? (Hve margir strákar, hve margar stelpur?)
  • Hvenær byrja börn að ganga í skóla á Íslandi?
  • Í öðrum löndum?
  • Hvað eru þau lengi í skóla á daginn?
  • Hvað gera þau eftir skólatíma?
  • Hvernig verja nemendur frítíma sínum (s.s. helgum og skólaleyfum)?
  • Er það misjafnt eftir löndum?
  • Er það misjafnt eftir því hvort búið er við sjó, í sveit eða í borginni?
  • Hvernig er félagslífi í skólanum háttað?
  • Hvers konar starfsemi er boðið upp á í félagsmiðstöðinni?
  • Hvar hittast unglingar sem ekki eiga aðgang að félagsmiðstöð?
  • Hvað gera þeir saman?
  • Hver eru helstu áhugamál jafnaldranna?
    • stelpna
    • stráka
    • sameiginleg
    • flokkaðu eftir landshlutum eða löndum.

Verkefni:

  • Taktu viðtöl við nemendur sem hafa ólík áhugamál.
  • Taktu viðtal við einhvern sem skarar fram úr í íþróttum, tónlist, myndlist, ritlist.
  • Átrúnaðargoð: Hvers konar átrúnaðargoð eru mest áberandi? Íþróttafólk, leikarar, tónlistarmenn?
  • Er mismunur eftir kynjum/löndum/landshlutum?
  • Hvað fylgir því að vera goð? Hvaða áhrif hafa átrúnaðargoð, bein og óbein, á tísku, viðhorf, skoðanir, ábyrgð?
  • „Kæra dagbók…“ Skrifaðu um einn dag í lífi þínu.

Ritbjörg og Ritfærni eru góð hjálpartæki.