Þjóðhátíðardagar

Markmið:  Menningarmiðlun:  siðir og venjur.

  • Þessar hugmyndir má nýta fyrir sérhvert Norðurlandanna.
  • Skipta má nemendum í hópa og hver hópur dregur sitt land ef tilefni gefst til.
  • Nemendur geta gengið út frá eigin reynslu þegar fjallað er um þjóðhátíðardaginn.
  • Markmiðið er að færa þjóðhátíðardaginn inn í skólastofuna og nemendur vinna einir eða í hópum.

 Umræður.

  • Hvenær eru þjóðhátíðardagar Íslendinga og annarra Norðurlanda?
  • Hvers vegna höldum við daginn hátíðlegan? En aðrir?
  • Hvaða aðrir dagar eru merkisdagar hér á landi? (Sjómannadagurinn, nýársdagur, sumardagurinn fyrsti).

Einstaklingsverkefni

  • Teiknaðu fánana.
  • Lærðu eitthvert ættjarðarljóð, skrifaðu það niður, myndskreyttu.
  • Segðu frá því sem gert er á þjóðhátíðardaginn.
  • Hvernig er íslenski þjóðbúningurinn?

Hópverkefni

  • Útbúin er stuttmynd af þjóðhátíðardeginum.
  • Hver þátttakandi fær ákveðið hlutverk þegar hópurinn hefur ákveðið í sameiningu hvað á að vera á myndinni.
  • Leikræn tjáning. Nemendur setja þjóðhátíðardaginn á svið með upplestri ljóða, leikþáttum, söng eða hljóðfæraleik.