Markmið: Að gera nemendur meðvitaða um sitt nánasta umhverfi og hvernig það lítur út í augum þeirra sem sækja þá heim.
- Hvar býrðu á landinu?
- Hvernig er veðurfarið? (vetur, sumar)
- Hvaða farartæki þarf að nota til að komast til þín frá útlöndum? (sumar, vetur)
- Hvað vildir þú helst sýna norrænum jafnöldrum þínum?
- Hvernig býður þú góðan dag, gott kvöld, góða nótt á norrænu máli?
Verkefni
- Nemendur finna heimabyggðina sína á landakorti.
- Nemdnur finna myndir heima hjá sér sem teknar eru í heimabyggðinni á ýmsum árstíðum og skrifa stuttan texta við þær.
- Nemendur teikna myndir eða segja frá því sem þeir vilja helst sýna gestum sínum eða gera með þeim.
- Nemendur æfa sig í að nota viðeigandi kveðjur á norrænu máli: góðan dag, gott kvöld, góða nátt