Markmið: Að nemendur geti fjallað um sumarstörf unglinga og geti sett þau í víðara samhengi.
Verkefni:
- Hefur þú haft sumarvinnu?
- Hvers konar vinna er það?
- Hvaða laun fá krakkar fyrir gæslu barna, blaðaútburð og í vinnuskólanum?
- Hvers konar vinnu stunda jafnaldrar þínir á Norðurlöndum?
- Vinnuskóli er nánast óþekkt fyrirbæri á öðrum Norðurlöndum. Hvernig myndir þú kynna hann fyrir jafnöldrum þínum?
- Hvað ætlar þú að verða?
- Þekkirðu eitthvað til starfsins? Farðu á vettvang og taktu viðtal við einhvern sem gegnir þessu starfi.
- Áttu von á því að geta unnið við þetta starf í heimabyggð þinni?
- Hverjir eru aðalatvinnuvegir í byggðarlaginu þínu?
Afrakstur:
- Umræður með vinnustofusniði þar sem hópar leita svara við einhverjum ofangreindra spurninga.
- Nemendur skiptast á að kynna niðurstöður hópanna, t.d. með skjákynningum (PowerPoint), myndaalbúmi (Bookr eða Flickr Toys), blaði (Glogster) eða uppsláttartöflu .