Markmið: Að nemendur kynnist hugtakinu fjölmiðill?
- Hvað er fjölmiðill?
- Hvaða fjölmiðla þekkja nemendur?
- Eru það prentmiðlar, netmiðlar eða ljósvakamiðlar?
Verkefni:
- Yngstu nemendurnir halda sig við einfalda útfærslu, t.d. sjónvarpsdagskrána (barnaefni, framhaldsþætti, kvikmyndir) og einn fréttatíma.
- Segja frá því sem þeir tóku eftir í fréttatímanum, jafnvel teikna mynd og skrifa skýringu.
- Barnaefni má endursegja, jafnvel bera saman við annað efni, gera myndasögu, o.s.frv.
- Nemendur geta klippt úr fyrirsagnir, myndir af frægu fólki og flokkað eftir löndum.