Markmið: Að unglingar horfi með gagnrýnum augum á hvernig um þá er fjallað sem markhóp í fjölmiðlum.
- Hvernig eru unglingar sýndir í þessum blöðum?
- Er munur á því hvernig unglingar eru sýndir í auglýsingum, fréttum, greinum eða viðtölum?
- Við hvernig krakka eru tekin viðtöl?
- Um hvernig krakka er fjallað í fréttum?
- Hvaða efni er ætlað unglingum?
- Hver er uppáhaldsteiknimyndapersónan?
- Hvaða teiknimyndasaga er skemmtilegust?
- Flokkaðu umfjöllun um unglinga eftir efni og svo eftir löndum og gerðu þér grein fyrir sérkennum hverrar þjóðar.
- Hvaða þættir eru skemmtilegastir í sjónvarpi?
- Hvers konar tónlist hlustarðu á?
- Hver er þinn uppáhaldstónlistarmaður/hljómsveit, íslensk?
- Hvernig lítur vinsældalistinn (tónlist og myndbönd) út hér á landi miðað við önnur lönd?
Verkefni:
Farðu inn á síðuna Musik på nordiska språk, hlustaðu á tónlistina, lestu textana og nýttu þér verkefnin sem fylgja.
Þekkirðu aðra norræna listamenn sem þú vilt vekja athygli á? Aflaðu þér upplýsinga á netinu og youtube.