Markmið: Að víkka sjóndeildarhring nemenda og kynna fyrir þeim norræna tónlistarmenn, tónskáld, rithöfunda, leikstjóra, leikara, hönnuði, arkitekta, myndlistarmenn, sem þekktir eru víða um heim. (Listinn er afar ófullkominn.)
- Hvaða listgreinar stundar þú (í skólanum, utan skólans)?
- Þekkir þú náið einhvern listamann?
- Við hvaða listgrein starfar hann?
- Geturðu nefnt einhverja fræga listamenn?
- Hvaða listgreinar stunda þeir?
Nemendur kynna sér ýmsar listgreinar og reyna sjálfir fyrir sér á þeim vettvangi.
- Teikna eða segja frá þeirri listgrein, sem þeim féll best.
- Hvaða listgrein er vinsælust?
Upplýsingum safnað saman og þær birtar öðrum nemendum í vefsíðu, á bloggsíðu eða wikisíðu með skjákynningum (PowerPoint), myndaalbúmi (Bookr eða Flickr Toys), blaði (Glogster), uppsláttartöflu eða myndbandi.