Markmið:
Að nemendur geri sér grein fyrir hvernig efni um norðurlöndin birtist í fjölmiðlum.
- Hvaða upplýsingar fáum við um Norðurlöndin í (íslenskum) fjölmiðlum?
- Hver nemandi eða hópur flokkar efni sem birtist í íslenskum dagblöðum, sjónvarpi, útvarpi eða öðrum miðlum í eina viku.
Hugmyndir að flokkun:
- Auglýsingar: Matur, föt, tæki, aðrar neysluvörur o.s.frv.
- Menning: Bókmenntir, kvikmyndir, listir, stakir þættir, framhaldsþættir o.fl.
- Fréttir: Íþróttir – frægt fólk – stjórnmál – greinar og fréttir almenns eðlis (sem svo má flokka í jákvæðar eða neikvæðar fréttir).