Ferðakynning

Markmið: Að vekja yngstu nemendurna til meðvitundar um þekkingu sína á Norðurlöndunum.

Verkefni:

  1. Nemendur koma með einhvern hlut tengdan Norðurlöndunum og segja frá honum. Það getur verið póstkort, myndir, ferðabæklingar og minjagripir.
  2. Nemendur segja sögu t.d. frá lestarferð, skemmtigarði, dýragarði, skógar- eða strandferð og sýna myndir frá þessum stöðum.
  3. Sett er upp myndasýningu af þeim stöðum sem bekkjarfélagarnir hafa heimsótt (ekki gleyma að Ísland er líka eitt Norðurlandanna).
  • Hvaða Norðurlönd hafa félagarnir heimsótt?
  • Hvaða tungumál eru töluð þar?
  • Hvaða orð kunna nemendur?
  • Hvernig eru fánarnir?