Markmið:
- Að vekja áhuga á Norðurlöndum og ferðalögum til þeirra.
- Að vekja nemendur til umhugsunar um hve mikilvægt er að undirbúa sig vel undir ferðalög.
Undirbúningsvinna – könnun á þekkingu nemenda
- Hvað veistu um hvert land fyrir sig?
- Hvaða skilríki þarftu til að komast til Norðurlanda?
- Hvernig kemstu þangað – hvaða farartæki standa til boða?
- Hvaða kostnaðarliðum má reikna með ef Norðurlöndin eru heimsótt?
- Hvaða farartæki eru notuð innan lands og milli Norðurlandanna?
- Hvert viltu helst fara með bekknum þínum?
- Hvað þarftu að vita áður en þú leggur af stað?
- Á hvaða árstíma viltu helst fara?
- Hvernig er veðrið þá?
- Hvaða fatnaður er hentugur?
- Hvernig viltu helst nota tímann? Er munur á því eftir árstíðum?
- Hvaða mynt þarftu? Hvert er gengi hennar miðað við íslenska krónu? Nýttu þér Myntbreyti á heimasíðum banka.
Viðfangsefni er varða undirbúning ferðar, raunverulegrar eða ímyndaðrar
Hópvinna: 3-4 manna hópar.
- Hver hópur dregur sér land til umfjöllunar
- Nemendur skrá hjá sér það sem hópurinn veit sameiginlega um einhverja eftirfarandi þátta:
-
- Höfuðborg (stærð, staðsetning, íbúar o.fl.)
- Tungumál – hvaða orð og setningar er nauðsynlegt að kunna?
- á flugstöð
- á lestarstöð
- á veitingahúsi
- í skemmtigarði
- á götuhorni o.fl.
- Merkilegir staðir (söfn, sýningar o.fl.)
- Skemmtilegir staðir (skemmtigarðar, dýragarðar o.fl.)
- Peningar (gjaldmiðill, gengi, verðlag á mat, gistingu, ferðalögum, afsláttarkort í lestir, söfn o.fl)
- Matur (veitingahús, kaffihús o.fl.)
- Götulíf
- Frægt fólk
- Sjónvarp
- Ferðamöguleikar innanlands (ferjur, lestir o.fl.)
- Verslanir
- Atvinnuvegir
- Landslag – náttúruperlur
Heimildir
Efni af opinberum heimasíðum ríkis og sveitarfélaga, heimasíðum dagblaða, ferðamála, o.s.frv.
Myndefni frá Norðurlöndunum.
Frásagnir nemenda eða annarra sem hafa verið búsettir á Norðurlöndum.