Markmið: Að nemendur geti lýst fjölskyldu sinni og tengslum milli einstaklinga í fjölskyldunni.
- Segðu frá fjölskyldu þinni og jafnvel hvaða hlutverki hver gegnir á heimilinu.
- Hvernig er verkaskiptingin?
- Hver eru tengsl við afa, ömmu, frænda, frænku?
- Hvernig búa afi og amma, langafi og langamma?
Verkefni: Hver nemandi getur útbúið litla úrklippubók um sig og sína fjölskyldu.
- Inntak: Kynning á eiganda úrklippubókarinnar: nafnið mitt, hverjir eru í fjölskyldunni, áhugamál mín…
- Efni: Myndefni að heiman, eigið líf og reynsla.
- Vinnulag: Bekkurinn vinnur saman í hópum og sem heild að því að setja fram hugmyndir að inntaki og útfærslu. Hver nemandi útbýr svo sína eigin úrklippubók með myndefni að heiman.
- Kaflaskipti: Ein síða fyrir hvert efni. Persónuleg útfærsla, myndefni og útlit.
- Tími: Tveggja til þriggja vikna verkefni sem unnið er bæði í skólanum og heima.