- Hverjir eru helstu atvinnuvegir á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Grænlandi, Færeyjum, Finnlandi?
- Er munur á atvinnulífi fólks í t.d. Norður- eða Suður-Noregi eða Norður- eða Suður-Svíþjóð?
- Í hverju er hann fólginn?
Í hvaða löndum tengir þú þessi vörur og vörumerki? Hvers konar vörur eru framleiddar undir hverju merki?
Volvo, Saab, Scania, Freja, Bang & Olufsen, Maarud, Dansukker, timbur, dagblaðapappír, eldspýtur, smørrebrød, Ecco, Danfoss, Marel, Nokia, Kosta – Boda, Arabia, Tuborg, skinka, OTA-matvörur, Nidar- Bergene, Marimekko?
- Hvað segja þessar vörur um atvinnuvegi hvers lands?
- Hverjar eru helstu náttúrauðlindir Norðurlandanna?
- Hvernig tengist framleiðsla þessara vörutegunda náttúruauðlindum hvers lands?
- Hvers konar vörur eru framleiddar á Íslandi?
Hvaða starfsheiti tengir þú:
- iðnaði,
- bönkum (t.d. bankastjóri, gjaldkeri, ritari),
- fiskveiðum,
- landbúnaði,
- viðskiptum,
- heilbrigðismálum,
- menntamálum,
- Alþingi,
- opinberri þjónustu t.d. réttarkerfinu o.s.frv.?
- Finndu hver starfsheiti foreldra þinna eru á einhverju Norðurlandmáli.
- Hvaða reglur eru til um hvaða störfum unglingar mega sinna?
- Hversu langur má vinnutíminn vera fyrir hvern aldur?
- Hvernig samræmist þetta reglum í öðrum löndum?
- Hver er réttur þinn til að fá atvinnu á Norðurlöndunum?
Hver Norðurlandanna eru þekkt fyrir
- siglingar,
- olíuvinnslu,
- málmgrýti,
- fiskveiðar,
- landbúnað,
- iðnað,
- hönnun,
- skógarhögg,
- pappírsvinnslu,
- timburiðnað?
Eru þessir atvinnuvegir eitthvað bundnir landshlutum eða breiddargráðum?
Þessi verkefni henta vel sem samskiptaverkefni á hvaða skólastigi sem er.
Upplýsingum safnað saman og þær birtar öðrum nemendum í vefsíðu, á bloggsíðu eða wikisíðu með skjákynningum (PowerPoint), myndaalbúmi (Bookr eða Flickr Toys), blaði (Glogster), uppsláttartöflu eða myndbandi.