Markmið: Að nemendur kynni sér vel eitt norðurlandanna og setji upp ferðasýningu þar sem öll norðurlandanna eru kynnt.
Hópvinna:
- Hver hópur kynnir sitt land t.d. með myndböndum, myndum og heimatilbúnum bæklingum.
- Hægt er að samþætta fleiri greinar í verkefninu s.s. heimilisfræði, samfélagsgreinar og norræn mál.
Eftir ferðakynninguna gerir hver nemandi ferðaáætlun fyrir sig og félaga sína:
- Nemandinn þarf að skipuleggja 10 daga ferð með viðkomu í tveimur Norðurlandanna (til viðbótar því sem hann er búinn að kynna).
- Í ferðaáætluninni þarf að gera grein fyrir kostnaði, á hvaða hátt er ferðast, gistingu, hvað á að gera og hvað á að sjá.
- Hvaða gjaldmiðill er notaður í landinu?
- Hvert er gengi hans miðað við íslensku krónuna? Nota Myntbreyti á heimasíðum bankanna.
- Upplagt að nýta sér upplýsingar frá samskiptabekk á neti í tengslum við bekkjarheimsóknir.
- Munið eftir að skrifa þakkarbréf til gestgjafanna!