Markmið: Að nemendur geri sér grein fyrir hverju þarf að huga að til að gestunum líði sem best.
- Hvar eiga gestirnir að sofa?
- Hvað eiga gestirnir að borða og hvar?
- Hvers konar fatnað ráðleggur þú þeim að taka með sér?
- Hvað viltu að þeir viti um heimabyggðina áður en þeir koma?
- Hvaða mál þarftu að tala við Norðurlandabúa?
- Hvernig heilsar þú og býður gestinn velkominn og hvernig kveður þú?
Verkefni:
- Skipuleggðu tveggja daga heimsókn jafnaldra frá Norðurlöndum, jafnt stráka sem stelpna.
- Er undirbúningur að heimsókn annar að sumri en vetri?
- Búðu til matseðil og dagskrá – á íslensku og á tungumáli gestanna.
- Skipulegðu skoðunarferðir og kvöldvöku: hvað ætlið þið að gera, hvað viljið þið að gestirnir geri og sjái?