Markmið: Að vekja athygli nemenda á íþróttaiðkun í nánasta umhverfi þeirra.
- Stundar þú og/eða fjölskylda þín einhverjar íþróttir? Hverjar?
- Hvaða íþróttagreinar höfða helst til þín? Hvers vegna?
- Áttu eftirlætisíþróttamann? Hver er hann / hún?
- Hvaða íþróttir eru einkennandi fyrir hvert Norðurlandanna?
- Hvaða aðrar íþróttir eru vinsælar á Norðurlöndum – í hverju landi fyrir sig?
Verkefni:
- Nemendur búa til lista yfir íþróttagreinar, sem þeir þekkja og annan yfir íþróttamenn frá Norðurlöndum.
- Hægt er að fá hugmyndir úr dagblöðum, íþróttablöðum, vefsíðum og munnlegum heimildum að heiman.
- Nemendur finna myndir og búa til veggspjald með nokkrum nöfnum, e.t.v. flokkað eftir íþróttum, og skrá helsta árangur og hvenær hann náðist.