Markmið:
- Að nemendur kynnist því sem jafnaldrar þeirra eru að fást við – innanlands eða utan.
- Að hvetja til samskipta við nemendur í öðrum löndum og kynnast lífsháttum þeirra.
- Að nemendur þjálfist í að segja frá sjálfum sér og eigin lífi á hvort sem er á eigin tungu eåa erlendum tungumálum.
- Að nemendur þjálfist í að spyrja markvissra spurninga og svara skilmerkilega.
Þetta verkefni hentar vel til samþættingar greina (móðurmáls og norrænna mála) og samskipta við nemendur annars staðar.
Verkefni:
Hugmynd er að setja upp hópa unglinga á innra neti skóla eða í samstarfsverkefnum milli landshluta eða landa þar sem nemendur skrifa ævintýri, fréttir, frásagnir og sögur og setja þau inn á netið öðrum til ánægju.
Hægt er að biðja nemendur að ganga út frá einhverju ákveðnu sameiginlegu minni.
Úrvinnsla:
- Kannanir: Nemendur geta gert könnun í bekknum sínum þar sem spurt er um tómstundir s.s. lestur, notkun sjónvarps, iðkun/áhuga á íþróttum. þeir geta haft samband við einhvern bekk annars staðar á landinu, í öðru landi/löndum sem gerir sams konar könnun – og síðan geta bekkirnir skipst á niðurstöðum, borið þær saman og birt þær, t.d. í formi einfalds texta og teikninga, ljósmynda eða úrklippa á veggspjaldi.
- Vinabekkir: Nemendur eignast vinabekk í skóla, innan lands eða utan. Nemendur búa til spurningar varðandi allt sem þeir vilja vita um daglegt líf einstaklinga í viðkomandi landi / landshluta og vinabekkurinn fær það hlutverk að svara þessum spurningum.
- Bréfaskipti, bekkjarblað, myndaalbúm með stuttum texta, tölvusamskipti. Gera má samanburð á milli landa/landshluta. Bekkurinn gefur út bekkjarblað þar sem hver nemandi segir frá sjálfum sér í máli og myndum; fjölskyldu, áhugamálum, hvað hann gerir á sumrin o.s.frv. þetta blað er sent vinabekknum sem kynning (og bekkurinn fær væntanlega svipað blað í staðinn). Í blaðinu má einnig fjalla um félagslíf unglinga, fermingu, siði og venjur og áhugamál þeirra. Segja má frá uppáhaldsleikaranum, -söngvaranum, -íþróttamanninum, -tónlistinni, -matnum, -tískunni, -bókinni, -höfundinum. . .