Markmið: Að nemendur geri sér grein fyrir stöðu sveitarfélagsins innan kjördæmis eða landsins í heild.
Afrakstur:
- Viðtöl við fulltrúa í stjórnsýslu, þjónustu og atvinnulífi.
- Myndbönd – hljómbönd.
- Útvarpsþáttur – sjónvarpsþáttur.
- Dagblað – veggblað – vefsíða.
Áherslur:
Hvað eru nemendur ánægðir með í sveitarfélaginu og hverju vilja þeir breyta?
Hafa nemendur skoðun á landnýtingu, umhverfisvernd eða nýjum atvinnuháttum innan sveitarfélagsins?
Verkefni:
- Búið til kynningarmyndband eða kynningarblað sem síðan er sent til samskiptabekkjar innan lands eða utan, (skólinn, áhugamál, atvinnulíf eða saga). Tengja má tungumálakennslu.
- Horfið á sveitarfélagið með augum skáldsins og/ eða sagnfræðingsins.
- Lesið ljóð, þjóðsögur, ævintýri og frásagnir tengdar sveitarfélaginu og örnefnum þess.
- Einnig má kynna nemendum þjóðtrú og hulduverur út frá staðháttum og lestri þjóðsagna tengdar hverju byggðarlagi.
- Hvers konar verur, bústaðir þeirra, lífshættir, eiginleikar, útlit og hvernig var samskiptum manna og vera háttað.
- Hvers konar verur eru þekktar á svæðinu?
- Hvernig eru bústaðir þeirra og lífshættir?
- Hverjir eru eiginleikar og útlit þeirra?
- Hvers eðlis eru samskipti manna og vera?
- Ómennskar verur eru mismunandi eftir landshlutum og löndum.
- Í þjóðtrú Norðurlanda er að finna verur eins og nornir, búálfa, hafmeyjar og fossbúa.
- Vert er að benda á möguleika á því að nemendur veiti samskiptabekk upplýsingar um þá þjóðtrú sem tengist heimabyggðinni og fái í staðinn upplýsingar um annars konar verur.
Heimildir:
Bókasafn skólans og staðarins
Byggðasaga
Hagtölur mánaðarins frá Hagstofa Íslands
Sögur og sagnir tengdar átthögum
Viðtöl við foreldra, ættingja, nágranna…
Uppgötvun nemandans á eigin umhverfi